Enginn skólaakstur mánudaginn 14. febrúar
Skólabílar ganga ekki í dag í dreifbýlinu, mánudaginn 14. febrúar, vegna ófærðar. Staðan verður tekin þegar líður á morguninn og mögulega fer þá aksturinn í gang á ný. Nýjar upplýsingar verða birtar á heimasíðunni.
Vasaljósaganga í -12°C
Úr vikubréfi 4. IM Fréttir vikunnar 7.- 11. febrúar Á þriðjudaginn var gerð heiðarleg tilraun til að skella sér í vasaljósagöngu. Þar sem veðrið var leiðinlegt nýttum við okkur ljósin á annan hátt. Ljósin í stofunni voru slökkt og notuðum við birtuna af þeim til að læra. Á miðvikudaginn fengum við gesti í heimsókn. Hópur …
Ljós og skuggar
Allir nemendur og starfsmenn Stekkjskóla fóru í vasaljósagöngu fimmtudaginn 12. febrúar. Í vikubréfi 2.-3. ES var m.a. sagt frá göngunni. Komið þið sæl kæru foreldrar og forráðamenn. Foreldraviðtölunum er að mestu lokið og almennri ánægju hefur verið lýst þar. Allir nemendur og starfsmenn fóru í vasaljósagöngu á fimmtudaginn og var það mjög gaman. Við gengum …
Fjölbreyttir kennsluhættir
Í hverri viku fara vikubréf heim frá umsjónarkennurum. Hér má sjá brot úr vikubréfi 1. EIK frá 11. febrúar og myndir með. Góðan dag kæru foreldrar og forráðamenn Þá er ein önnur vikan senn á enda hjá okkur hér í 1.EIK. Þessa vikuna lærðum við 2 nýja stafi en það voru Kk og Dd, við …
Skólahald fellur niður mánudaginn 7. febrúar vegna veðurs
Ágætu foreldrar og forráðamenn Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðurland á morgun, mánudaginn 7. febrúar. Vegna þess hefur verið ákveðið í samráði við Almannavarnir að grunnskólastarf í sveitarfélaginu Árborg falli niður á morgun. Kveðja,stjórnendur