Innritun í grunnskóla skólaárið 2026−2027
Innritun barna sem eru fædd árið 2020 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2026 hefst 9. febrúar næstkomandi. Innritun fer fram á https://island.is/umsoknir/grunnskoli og hefst úrvinnsla umsókna um miðjan febrúar. Nánari upplýsingar um grunnskólana í Árborg, ásamt skráningu í mötuneyti og frístund má finna á vefsíðu Árborgar. Upplýsingar um innritun er hægt að fá í […]
Fjölmennur fundur um Matsferil og stöðu- og framvindupróf
Í dag, mánudaginn 9. febrúar, var haldinn fundur í Stekkjaskóla um stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS). Fundurinn var fyrir alla skólastjórnendur grunnskólanna í Árborg, kennara sem koma að íslensku- og stærðfræðikennslu frá 3. bekk og uppúr, tæknifólk í skólunum, kennara í stoðþjónustu, kennsluráðgjafa og aðra áhugasama. […]
Starfsdagur og foreldradagur, 5.-6. febrúar – Vöfflukaffi
Fimmtudaginn 5. febrúar er starfsdagur í Stekkjaskóla og föstudaginn 6. febrúar er foreldradagur. Þessa daga mun nemendafélag skólans standa fyrir vöfflukaffi og lengd viðvera verður í frístundinni Bjarkarbóli fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir. Sjá nánar bréf sem fór heim til forráðamanna hér.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Starfsfólk Stekkjaskóla óskar nemendum, forráðamönnum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum fyrir ánægjulegt og gott samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst á nýju ári þriðjudaginn 6. janúar 2026 samkvæmt stundatöflu. Skrifstofa skólans opnar eftir jólaleyfi mánudaginn 5. janúar 2026. Sjá nánar hátíðarkveðju hér. Bestu […]