Starfsdagur 30. október – Foreldra- og nemendaviðtöl 31. október

Við minnum á að samkvæmt skóladagatali skólans er starfsdagur mánudaginn 30. október og þriðjudaginn 31. október eru foreldra- og nemendaviðtöl.

Mánudaginn 30. október verður starfsdagur og því enginn skóli. Frístund verður þó opin fyrir þau börn sem nú þegar er búið að skrá. Sjá hér.
Þennan dag verða starfsmenn í ýmsum undirbúningi s.s. fyrir foreldradaginn sem verður daginn eftir. Einhver foreldraviðtöl verða þó tekin þennan dag.

Foreldra- og nemendaviðtöl, þriðjudaginn 31. október

Umsjónarkennarar hitta nemendur og foreldra í viðtali. Sjá nánari upplýsingar frá
umsjónarkennurum.

Við hlökkum til að sjá nemendur og foreldra á viðtalsdaginn.

 

Kærar kveðjur, starfsfólk Stekkjaskóla