Fréttasafn
Fréttir frá Stekkjaskóla
Þemadagar 17.-19. apríl – Fjölmenning í Stekkjaskóla
Dagana 17. -19. apríl verða þemadagar í Stekkjaskóla. Þemað er fjölmenning í Stekkjaskóla og verða unnin verkefni um löndin sem nemendur okkar tengjast. Við erum með nemendur frá 16 löndum, að Íslandi meðtöldu. Nemendum verður skipt í aldursblandaða hópa þessa …
Þemadagar 17.-19. apríl – Fjölmenning í Stekkjaskóla Read More »
Fréttabréf til forráðamanna
Skólastjórnendur sendu út þriðja fréttabréf skólaársins til forráðamanna föstudaginn 5. apríl. Í fréttabréfinu er m.a. sagt frá því að Stekkjaskóli hlaut tvær tilnefningar til Menntaverðlauna Suðurlands, kynning á nýsamþykktum verklagsreglum Árborgar um viðbrögð þegar bregðast þarf við/stöðva óásættanlega og/eða skaðlega …
Áföll barna og þróun sjálfsmyndar
Mánudaginn 8. apríl kl. 20:00 standa foreldrafélög Jötunheima, Goðheima, Álfheima, Árbæjar og Stekkjaskóla fyrir fyrirlestri sem heitir: Áföll barna og þróun sjálfsmyndar. Fyrirlesarar eru Katrín Katrínar og Theodór Francis klínískir félagsráðgjafar. Sjá nánar hér. Öll velkomin í Stekkjaskóla, foreldrafélögin …
Stekkjaskóli – laus störf skólaárið 2024-2025
Stekkjaskóli auglýsir fjölbreyttar og áhugaverðar stöður fyrir næsta skólaár. Skólinn leggur m.a. áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag. Umsjónarkennarar á yngsta- og miðstig Íþróttakennari, tímabundin ráðning Stuðningsfulltrúar á miðstig Matráður Umsóknarfrestur er til …
Skóladagatal Stekkjaskóla skólaárið 2024-2025
Á fundi fræðslu- og frístundarnefndar 13. mars síðastliðinn voru skóladagatöl leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2024-2025 samþykkt. Skóladagatal Stekkjaskóla er komið á heimasíðu skólans. Sjá hér.
Súpufundur þriðjudagskvöldið 19. mars kl. 19:00
Forvarnarteymi Árborgar í samstarfi við Lögregluna á Suðurlandi og Fjölskyldusvið Árborgar býður til súpufundar þriðjudaginn 19.mars kl. 19:00 í Stekkjaskóla.Þema fundarins er velferð og farsæld í nútímasamfélagi.Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að hafa velferð og farsæld barna og ungmenna …
Bókun bæjarráðs um hreystivöll á skólalóð Stekkjaskóla
Á fundi bæjarráðs Árborgar 29. febrúar var tekið fyrir erindi frá skólaráði Stekkjaskóla þar sem skorað var á bæjarráð að kom upp skólahreystivelli á skólalóðinni. Eftirfarandi var bókað: Bæjarráð fagnar því að nemendur láti sig varða um hönnun skólalóðarinnar og …
Bókun bæjarráðs um hreystivöll á skólalóð Stekkjaskóla Read More »
Skertur skóladagur fimmtudaginn 7. mars
Fimmtudaginn 7. mars er skertur skóladagur hjá nemendum skv. skóladagatali. Hefðbundnum skóladegi lýkur þá um kl. 13:00. Kennarar og aðrir uppeldismenntaðir starfsmenn í grunnskólum Árborgar verða með sameiginlega dagskrá eftir hádegi í Vallaskóla. Dagskráin er tileinkuð upplýsingatækni í skólastarfi og …
Hinsegin vika í Árborg
Hinsegin vika Árborgar verður haldin hátíðleg í þriðja sinn í sveitarfélaginu, vikuna 26. febrúar til 1. mars. Starfsmenn og nemendur Stekkjaskóla munu taka þátt í vikunni. Við ætlum að hafa Regnbogadag í Stekkjaskóla föstudaginn 1. mars og hvetjum alla að …
Öskudagur og vetrarfrí framundan
Á morgun, miðvikudaginn 14. febrúar, er öskudagurinn. Það má gera ráð fyrir því að það verði líf og fjör í skólanum eins og undanfarin ár. Við hvetjum nemendur og starfsmenn til að mæta í búningum og gera sér glaðan dag. …
Pínulitla Mjallhvít
Leikhópurinn Lotta heimsótti Stekkjaskóla miðvikudaginn 7. febrúar með sýninguna Pínulitla Mjallhvít. Leikritið var sýnt fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Um var að ræða skemmtilega 30 mínútna sýningu sem var unnin uppúr sögunni um Mjallhvíti og dvergunum sjö. Sagan var sett upp …
Gosmökkurinn sást frá Stekkjaskóla
Eldgosið sem hófst að morgni miðvikudagsins 8. febrúar milli Sundhnúks og Stóra-Skógfells sást víða að. Nemendur og starfsmenn Stekkjaskóla sáu vel birtuna og reykjarmökkinn frá eldgosinu af efri hæð skólans. Margir nemendur fóru upp á efri hæðina og gátu séð …