Skóladagur Árborgar miðvikudaginn 30. mars – enginn skóli og engin frístund

Skóladagur Árborgar er haldinn annað hvert ár í Árborg og er fastur liður í starfsþróun og samvinnu skóla og skólastiga. Þar mætir allt starfsfólk grunnskólanna ásamt starfsfólki frístundaheimila, frístundaklúbba, félagsmiðstöðvar og ungmennahúss. Í ár verður skóladagurinn haldinn miðvikudaginn 30. mars í Sunnulækjarskóla.  Hér má sjá nánari upplýsingar um daginn og  dagskrána má sjá  hér.

Þema Skóladagsins í ár er Vellíðan okkar allra og miðast allir fyrirlestrar og vinnustofur við það þema.

Skóladagur Árborgar er starfsdagur og því er frí þennan dag hjá nemendum, enginn skóli og engin frístund.