Leikhópurinn Lotta heimsótti Stekkjaskóla miðvikudaginn 7. febrúar með sýninguna Pínulitla Mjallhvít.
Leikritið var sýnt fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Um var að ræða skemmtilega 30 mínútna sýningu sem var unnin uppúr sögunni um Mjallhvíti og dvergunum sjö.
Sagan var sett upp í nýjan og frumlegan búning, prýdd fallegum boðskap, frábærum húmor og góðum lögum.
Óhætt er að segja að bæði nemendur og starfsmenn skemmtu sér vel á sýningunni og hlógu mikið.
Nánar má lesa um sýninguna á heimasíðu List fyrir alla.