Skólastarf í Stekkjaskóla fellur niður þriðjudaginn 24. október – School is Cancelled on Tuesday, October 24th

Þriðjudaginn 24. október verður Kvennaverkfall og eru konur og  kynsegin fólk  hvatt til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf þann dag. Vegna kvennaverkfalls mun Stekkjaskóli ekki sjá sér fært um að halda úti kennslu þennan dag og mun skólastarf því falla niður 24. október. Sjá nánar bréf frá skólanum hér. Kærar kveðjur, skólastjórnendur Stekkjaskóla …

Skólastarf í Stekkjaskóla fellur niður þriðjudaginn 24. október – School is Cancelled on Tuesday, October 24th Read More »

Fréttabréf og vikubréf til forráðamanna

Í hverri viku senda umsjónarkennarar forráðamönnum vikubréf. Þar eru m.a. birtar fréttir af starfinu í hverjum árgangi og hvað er framundan. Annað slagið senda skólastjórnendur fréttabréf heim til forráðamanna með ýmsum fréttum um skólastarfið en helsta upplýsingaveita skólans er þó þessi heimasíða. Hér má sjá nýjasta fréttabréfið sem fór heim til allra forráðamanna 11. október …

Fréttabréf og vikubréf til forráðamanna Read More »

Ný stjórn foreldrafélags Stekkjaskóla

Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla var haldinn þann 12. september síðastliðinn. Pétur Aðalsteinsson,formaður foreldrafélagsins fór yfir ársskýrslu félagsins og Sólveig Ingadóttir fór yfir ársreikninga. Ákveðið var að hafa árgjald foreldrafélagsins óbreytt frá síðasta ári, 2.000 kr. á heimili óháð barnafjölda. Sjá skýrslu stjórnar hér. Á meðfylgjandi mynd eru nýir og fráfarandi fulltrúar í stjórn. Eftirfarandi foreldrafulltrúar eru …

Ný stjórn foreldrafélags Stekkjaskóla Read More »

Heimsókn í jarðskjálftamiðstöðina

Um daginn fór 4. HK í Auðlindarhóp í heimsókn í jarðsjálftamiðstöðina  í jarðskjálftaverkfræði við Háskóla Íslands. Lagt var af stað frá skóla rétt fyrir kl. 10 og hjólað ýmist á reiðhjólum, hlaupa- eða rafmagnshjólum að húsnæði jarðskjálftamiðstöðvar sem er í sama húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz sem flestir þekkja.  Elínborg Gunnarsdóttir skrifstofustjóri tók á móti hópnum fór …

Heimsókn í jarðskjálftamiðstöðina Read More »

Skertur dagur 28. september og haustþing kennara 29. september

Fimmtudaginn 28. september lýkur kennslu á miðstigi kl. 13:00 vegna haustþings Kennarafélags Suðurlands. Kennsla á yngsta stigi er samkvæmt stundatöflu.Föstudaginn 29. september er frí hjá nemendum vegna þingsins, sjá nánar á skóladagatali og í vikupósti frá umsjónarkennurum. Fjölbreytt og áhugverð dagskrá er á haustþingi KS. Sjá hér.    

Skákkennsla grunnskólakrakka

Laugardaginn 23. sept. klukkan 11:00 hefst skáknámskeið fyrir 8-16 ára krakka í Fischersetri. Skákfélag Selfoss og nágrennis sér um kennsluna og hafa nokkrir kennarar umsjón yfir kennslunni. Þetta verða 10 skipti eða einu sinni í viku og þá á laugardögum frá 11:00 – 12:30 og kostar allt námskeiðið 10.000 kr. Varðandi frekari upplýsingar þá vinsamlegast …

Skákkennsla grunnskólakrakka Read More »

Aðalfundur foreldrafélagsins

Aðalfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla verður haldinn þriðjudaginn 12. september kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn á kaffistofu starfsmanna á 2. hæð. Vonast er eftir góðri mætingu.    

Ólympíuhlaup ÍSÍ

Nemendur og starfsmenn Stekkjaskóla ætla að taka þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið fimmtudaginn 7. september. Eitt af markmiðum hlaupsins er að hvetja nemendur til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Hlaupið byrjar hjá færanlegu stofununum, sama stað og í fyrra. Íþróttakennarateymi skólans, þær Alda, Auður María …

Ólympíuhlaup ÍSÍ Read More »

Kynningafundir fyrir forráðamenn framundan

Á næstu dögum verða fræðslu- og kynningarfundir fyrir forráðamenn nemenda. Fundirnir fyrir forráðamenn nemenda í 1. og 5. bekk eru á vegum umsjónarkennara, skólastjórnenda og skólaþjónustu Árborgar. Aðrir fundir sjá umsjónarkennarar um og eru á skólatíma. Fyrsti fundurinn verður næstkomandi miðvikudag kl:17:00 fyrir forráðmenn barna í 1. bekk. Sjá nánar dagskrá fundarins hér. Fundurinn fyrir …

Kynningafundir fyrir forráðamenn framundan Read More »

Áformsbækur Stekkjaskóla

Við í Stekkjaskóla viljum stuðla að einstaklingsmiðuðu námi og kenna nemendum okkar að setja sér námsmarkmið út frá hæfniviðmiðum sem er unnið með hverju sinni. Með þessum bókum stuðlum við að því að nemendur setji sér markmið í samráði við kennara og samhliða sjá nemendur og foreldrar alltaf þau markmið sem stefnt er að. Í …

Áformsbækur Stekkjaskóla Read More »