Haldið var upp á dag íslenskrar tungu með ýmsum hætti í Stekkjaskóla í dag, 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Nemendur í 1. bekk unnu t.d. með ljóð Jónasar; Buxur, vesti, brók og skó.
Buxur, vesti, brók og skó,
bætta sokka nýta,
húfutetur, hálsklút þó,
háleistana hvíta.
Umsjónarkennararnir hengdu upp ýmsan klæðnað á þvottasnúru með skírskotun í ljóðið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Haft er eftir Hallgrími Tómassyni, systursyni skáldsins, að Jónas hafi kveðið vísu þessa á sjötta ári.
Einnig var byrjað að vinna með bækur Gunnars Helgasonar rithöfundar sem mun standa yfir fram að jólum. Gunnar ætlar síðan að koma í heimsókn til okkar föstudaginn 10. desember. Hann mun þá lesa upp úr tveimur bóka sinna; ,,Drottningin sem kunni allt nema…“ og ,,Bannað að eyðileggja”. Hann ætlar einnig að ræða almennt um lestur og vekja athygli á barnabókmenntum.