Vilt þú taka þátt í því að byggja upp sterka liðsheild í nýjum grunnskóla á Selfossi?
Okkur vantar öfluga og metnaðarfulla starfsmenn sem búa yfir þekkingu, reynslu og áhuga á skólastarfi:
- Verkefnastjóri og kennari í upplýsingatækni
- Umsjónarkennarar
- Matreiðslumaður
- Húsvörður
- Stuðningsfulltrúar
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Í dag fer starfið fram í færanlegum kennslustofum og í lok árs verður tekin í notkun 1. áfangi nýbyggingar skólans. Á komandi hausti verða um 160 nemendur í 1.-5. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 10 þúsund manns og lögð er áhersla á öflugt skóla- og frístundastarf og góða velferðarþjónustu. Skólar og aðrar deildir fjölskyldusviðs vinna að því að styrkja heildstæða nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, góð tengsl skóla og skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í anda lærdómssamfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem búa yfir þekkingu, reynslu og áhuga á skólastarfi.
Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2022.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Vakin er athygli á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hilmar Björgvinsson, skólastjóri, hilmarb@stekkjaskoli.is , sími 480-1600 / 863-0922 og Ástrós Rún Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri, astros@stekkjaskoli.is , sími 480-1600. Sjá einnig heimasíðu skólans www.stekkjaskoli.is .
Umsóknum fylgi leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi. Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins http://starf.arborg.is/ .