Sjóminjasafnið og fjaran

Nemendur í 2.-3. ES fóru um daginn til Eyrarbakka þar sem Sjóminjasafnið var skoðað og farið í fjöruna. Ferðin tókst vel og allir hegðuðu sér með sóma. 

Í fjörunni fundu nemendur  ýmsar lífverur svo sem klettadoppur, krabba, dauðan fisk og fallega steina og skeljar.