1. maí – baráttudagur verkalýðsins
1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Hann er haldinn hátíðlegur á Íslandi og tileinkaður réttindum launafólks og mikilvægi öflugrar verkalýðshreyfingar í samfélaginu. Enginn skóli er 1. maí enda er hann frídagur.
Gleðilega páska
Starfsmenn Stekkjaskóla óska nemendum, forráðamönnum og velunnurum skólans gleðilegra páska. Páskafrí er dagana 14.-21. apríl. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 22. apríl. Njótið samverustunda í páskfríinu.
Starfsfólk óskast í Stekkjaskóla
Stekkjaskóli fer stækkandi og nú vantar okkur öflugt fólk í frábæran starfsmannahóp skólans. Næsta haust byrjum við með unglingstig og því vantar okkur m.a. deildarstjóra eldri deildar sem er ný staða hjá okkur og tvo umsjónarkennara í 8. bekk. Einnig vantar okkur náttúrufræðikennara, stuðningsfulltrúa, aðstoðarmatráð og umsjónarkennara á yngsta- og miðstig. Spennandi tækifæri fyrir þá […]
Nemendur Stekkjaskóla sigruðu Svakalegu upplestrarkeppnina
Við fengum góðan gest í heimsókn til okkar fimmtudaginn 20. mars þegar Blær Guðmundsdóttir kom og veitti okkur viðurkenningu og bókaverðlaun fyrir að hafa unnið Svakalegu lestrarkeppnina á Suðurlandi sem haldin var síðasta haust. Nemendur Stekkjaskóla lásu alls 93.522 blaðsíður á einum mánuði og tryggði sér þar með titilinn að vera langbesti lestrarskóli Suðurlands 2024. […]
Skemmtun fyrir nemendur 5.-7. bekkjar tókst vel
Fimmtudaginn 20. mars, stóð nemendaráð Stekkjaskóla fyrir skemmtun fyrir nemendur í 5.–7. bekk í samstarfi við félagsmiðstöðina Zelsíuz. Skemmtunin fór fram í sal skólans sem var vel sótt eða um 80% nemenda. Þetta er fyrsta skemmtunin af þessu tagi sem haldin er í skólanum. Nemendur nutu sín við ýmsar skemmtilegar afþreyingar, m.a. dans, borðtennis, spil, […]