Nemendur í 1. EIK unnu ýmis verkefni í liðinni viku. Unnið var með stafinn Íí og lagður inn stafurinn Aa og nemendur skrifuðu hann í úrklippu- og verkefnabók. Í sögubók var unnið með ,,bestu” árstíðina okkar og í stærðfræði var unnið með form og mynstur.
Í hverri viku er stuðst við lífsleiknibókina um Tíslu. Þar eru stuttar sögur þar sem unnið er með skóla- og félagsfærni og tilfinningar. Í kjölfarið skapast fróðlegar og skemmtilegar umræður. Í vikunni var lesin sagan Tísla fer í frímínútur sem tók á neikvæðri hegðun í frímínútum og unnið með hugtökin reiði og fyrirgefningu. Farið var í Lyklakippuleikinn og Hver er undir teppinu og skemmtu allir sér konunglega.
Smiðjur voru bæði á þriðjudag og miðvikudag. Lauf og tígull fóru í heimilisfræði og æfðu sig í að smyrja og skera. Þar sem unnið hefur verið með skynfærin undanfarið lauk deginum með því smakka, þefa, snerta og hlusta. Börnunum fannst það mjög spennandi.