Gunnar Hliðdal Gunnarsson grunnskólakennari hefur verið ráðinn sem þriðji umsjónarkennarinn í 3.-4. bekk. Hann hefur langan og góðan feril sem umsjónarkennari, síðustu árin í Grunnskóla Hveragerðis. Við bjóðum Gunnar hjartanlega velkominn í starfsmannahóp Stekkjaskóla.
Eins og áður hefur komið fram fjölgaði nemendum mikið rétt fyrir skólabyrjun og mest í 3.-4. bekk. Þess vegna var ákveðið að fjölga kennurum í þessum árgöngum.
Í dag er fjöldi nemenda í skólanum 171 og skiptist svona:
- árgangur – 43 nemendur
- árgangur – 37 nemendur
- árgangur – 28 nemendur
- árgangur – 24 nemendur
- árgangur – 39 nemendur