Mat á skólastarfi
Ytra mat
Menntamálastofnun hefur umsjón með ytra mati á leik- grunn- og framhaldsskólum fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis. Í ytra mati felst að matsaðilar Menntamálastofnunar leggja mat á starfsemi viðkomandi skóla með hliðsjón af gildandi viðmiðum sem meðal annars byggja á lögum, reglugerðum og aðalnámskrám. Er það gert með skoðun á fyrirliggjandi gögnum um starfsemi skólans, vettvangsheimsóknum matsaðila og viðtölum við börn/nemendur, starfsfólk skóla og foreldra.
Innra mat
Í 35. gr. grunnskólalaga frá 2008 er fjallað almennt um mat og eftirlit með gæðum grunnskólastarfs. Í 36. gr. er fjallað um innra mat skóla og þar kemur fram að hver grunnskóli eigi að meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs með virkri þátttöku starfsmanna, nemenda og foreldra eftir því sem við á. Þar segir að grunnskólar eigi að birta opinberlega upplýsingar um innra mat sitt, tengsl þess við skólanámskrá og áætlanir um umbætur. Mat á skólastarfi er ein leið til umbóta í skólum.
Stekkjaskóli styðst við ýmis matstæki til að meta innra starf skólans. Fyrst má nefna Skólapúlsinn sem er veflægt matskerfi fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla þar sem nemendur, foreldrar og starfsmenn svara spurningalista á netinu um flestalla þætti skólastarfsins. Til að meta frammistöðu og framfarir nemenda í námi er stuðst við fjölbreytt námsmat sem fer fram allt skólaárið, símat. Ýmsar skimanir eru lagðar reglulega fyrir nemendur, s.s. í lestri og sérstakar kannanir eru lagðar fyrir nemendur um líðan og samskipti. Rannsóknarmiðstöðin Rannsókn og greining sem sérhæfir sig í rannsóknum á högum og líðan ungs fólks bæði á Íslandi og erlendis leggur kannanir fyrir nemendur í 5.-10. bekk.
Vinnustaðargreining er gerð af Maskínu fyrir sveitarfélagið Árborg. Markmiðið með henni er að kanna viðhorf og líðan starfsmanna hjá sveitarfélaginu í þeim tilgangi að bæta vinnustaði þess.
Í Stekkjaskóla er starfandi matsteymi sem heldur utan um innra mat skólans. Skólaárið 2023-2024 eru eftirfarandi fulltrúar starfsmanna, foreldra og nemenda í teyminu. Þeir eru:
Eyrún Óskarsdóttir umsjónarkennari
Bergdís Bergsdóttir stuðningsfulltrúi
Hilmar Björgvinsson skólastjóri
Indlaug Cassidy Vilmundardóttir
Kristjana Sigríður Skúladóttir fulltrúi foreldra
Lilja Írena H. Guðnadóttir tónmenntakennari
Matskannanir:
Matsskýrsla Stekkjaskóla 2021-2022
Skólapúlsinn - Forráðamenn mars 2022
Maskína - Starfsmannakönnun nóvember 2022
Skólapúlsinn - Forráðamenn febrúar 2024
Skólapúlsinn - Nemendur apríl 2024
Moodup - Starfsmannakönnun apríl/maí 2024