Haustþing kennara

Eins og fram hefur komið í vikubréfum kennara og á skóladagatali er starfsdagur næstkomandi föstudag, 27. september.

Þennan dag eru kennarar og annað uppeldismenntað starfsfólk á Haustþingi kennarafélags Suðurlands.
Haustþingið hefst á fimmtudaginn eftir hádegi.

Á fimtudaginn lýkur skóla hjá öllum kl:13:00 í stað 13:10.
Nemendur á frístund ljúka deginum sínum hér kl:13 og fara síðan beint í hefðbundið frístundastarf.
Nemendur sem eru ekki á frístund ljúka deginum sínum hér kl:13:00.
Nemendur á miðstigi ljúka deginum sínum hér kl:13:00 í stað 13:50.

Nemendur sem taka „sveitarútuna“ taka hana heim um 13:15 þegar hún hefur sótt í hina skólana.

Bestu kveðjur, starfsfólk Stekkjaskóla