Uncategorized

Kór Stekkjaskóla með tónleika föstudaginn 3. maí kl. 18:00

Kór Stekkjaskóla er með vortónleika föstudaginn 3. maí kl. 18:00. Þá eru foreldar, forráðamenn, afar og ömmur o.fl. velkomnir á örstutta tónleika (ca. 20-25 mínútur) þar sem við syngjum fyrir ykkur það sem við höfum verið að vinna með á vorönninni. Kannski birtast einhverjir einsöngvarar líka? Bestu kveðjur Alexander Freyr og Stefán

Tónleikar Tónlistarskóla Árnesinga og Tónsmiðju Suðurlands ásamt kór Stekkjaskóla

Fimmtudaginn, 2. maí verða tónleikar í Stekkjaskóla í samstarfi við Tónlistarskóla Árnesinga og Tónsmiðju Suðurlands. Tónleikarnir verða tvískiptir, kl. 8:30 stíga á svið nemendur í 1.-3. bekk og klukkan 9:10 nemendur í 4. – 6 bekk ásamt kór Stekkjaskóla. Foreldrum og forráðamönnum þeirra nemenda sem koma fram á tónleikunum er sérstaklega boðið. Tónleikarnir verða í …

Tónleikar Tónlistarskóla Árnesinga og Tónsmiðju Suðurlands ásamt kór Stekkjaskóla Read More »

Fjölmenning – Multiculturalism in Stekkjaskóli. Opið hús föstudaginn 19. apríl kl. 11:45-12:45

Þemadagarnir okkar,  Fjölmenning í Stekkjaskóla,  hafa farið vel af stað og nemendur mjög áhugasamir. Heimsókn á morgun föstudag 19. apríl frá kl. 11:45-12:45. Athugið þetta er örlítið breytt tímasetning miðað við fyrri auglýsingu. Á morgun, föstudag viljum við bjóða foreldrum og forráðamönnum nemenda í heimsókn til okkar og sjá afrakstur nemenda á þemadögum. Foreldrar/forráðamenn hitta …

Fjölmenning – Multiculturalism in Stekkjaskóli. Opið hús föstudaginn 19. apríl kl. 11:45-12:45 Read More »

Þemadagar 17.-19. apríl – Fjölmenning í Stekkjaskóla

Dagana 17. -19. apríl verða þemadagar í Stekkjaskóla. Þemað er fjölmenning í Stekkjaskóla og verða unnin verkefni um löndin sem nemendur okkar tengjast. Við erum með nemendur frá 16 löndum, að Íslandi meðtöldu. Nemendum verður skipt í aldursblandaða hópa þessa daga og verður stundaskráin með aðeins breyttu sniði. Nemendur mæta á sín heimasvæði í byrjun …

Þemadagar 17.-19. apríl – Fjölmenning í Stekkjaskóla Read More »

Fréttabréf til forráðamanna

Skólastjórnendur sendu út þriðja fréttabréf skólaársins til forráðamanna föstudaginn 5. apríl. Í fréttabréfinu er m.a. sagt frá því að Stekkjaskóli hlaut tvær tilnefningar til Menntaverðlauna Suðurlands, kynning á nýsamþykktum verklagsreglum Árborgar um viðbrögð þegar bregðast þarf við/stöðva óásættanlega og/eða skaðlega hegðun nemenda í grunnskólum Árborgar, umfjöllun um fyrirhugða þemadaga um fjölmenningu 17.-19. apríl og kynning …

Fréttabréf til forráðamanna Read More »

Áföll barna og þróun sjálfsmyndar

Mánudaginn 8. apríl kl. 20:00 standa foreldrafélög Jötunheima, Goðheima, Álfheima, Árbæjar og Stekkjaskóla fyrir fyrirlestri sem heitir: Áföll barna og þróun sjálfsmyndar.  Fyrirlesarar eru Katrín Katrínar og Theodór Francis klínískir félagsráðgjafar. Sjá nánar hér. Öll velkomin í Stekkjaskóla, foreldrafélögin      

Stekkjaskóli – laus störf skólaárið 2024-2025

Stekkjaskóli auglýsir fjölbreyttar og áhugaverðar stöður fyrir næsta skólaár. Skólinn leggur m.a. áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.  Umsjónarkennarar á yngsta- og miðstig  Íþróttakennari, tímabundin ráðning  Stuðningsfulltrúar á miðstig  Matráður  Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2024.   Upplýsingar um störfin veita Hilmar Björgvinsson, skólastjóri, hilmarb@stekkjaskoli.is , sími …

Stekkjaskóli – laus störf skólaárið 2024-2025 Read More »

Súpufundur þriðjudagskvöldið 19. mars kl. 19:00

Forvarnarteymi Árborgar í samstarfi við Lögregluna á Suðurlandi og Fjölskyldusvið Árborgar býður til súpufundar þriðjudaginn 19.mars kl. 19:00 í Stekkjaskóla.Þema fundarins er velferð og farsæld í nútímasamfélagi.Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að hafa velferð og farsæld barna og ungmenna að leiðarljósi.Með auknu samstarfi á milli þjónustukerfa getum við enn frekar stutt við velferð fjölskyldna …

Súpufundur þriðjudagskvöldið 19. mars kl. 19:00 Read More »