Óskað er eftir þroskaþjálfa, atferlisfræðingi eða öðrum sérfræðingi á sviði uppeldis- og menntunarfræða í 100% starf frá með 1. nóvember eða eftir samkomulagi. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem starfar í nánu samstarfi við kennara í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.
Viðkomandi sérfræðingur vinnur í stoðþjónustuteymi skólans og veitir m.a. leiðsögn og ráðgjöf til foreldra og annarra starfsmanna. Hann styður við nám og atferlisþjálfun nemenda, í samstarfi við umsjónarkennara, er þurfa á sértækum stuðningi að halda í skólastarfinu og daglegum athöfnum.
Eitt af meginverkefnum sérfræðingsins er sértæk vinna með barn sem þarf mikinn stuðning og atferlisþjálfun.
Umsóknarfrestur er til og með 26. október 2026
Sjá nánar hér.
