Félófögnuður í Zelsíuz Stekkjaskóla fyrir fjölskyldur barna í 8.-9. bekk

Í tilefni af félagsmiðstöðva- og ungmennahúsaviku ætlar félagsmiðstöðin Zelsíuz að bjóða öllum fjölskyldum barna í 8.-9. bekk í heimsókn til okkar, þriðjudaginn 20. október frá 19:30-21:00.
Við viljum nýta þetta tækifæri til að bjóða foreldrum, forsjáraðilum og öðrum fjölskyldumeðlimum að kíkja við og kynna sér starfið og nýju aðstöðuna okkar í Stekkjaskóla.
Auk þess fá unglingar sem mæta með fjölskyldumeðlim auka mætingarstig! ??

Það verður heitt á könnunni og kaka í boði svo við hvetjum ykkur öll til að gefa ykkur tíma til að kíkja við, spjalla við starfsfólkið og eiga notalega stund með okkur.

Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur og sjá sem flest!
Kær kveðja, Starfsfólk Zelsíuz