Þemadagar hefjast á morgun – opið hús á fimmtudaginn

Á morgun, 28. apríl,  hefjast þemadagarnir hér í Stekkjaskóla. Þemadagarnir standa yfir í þrjá daga, 28. – 30. apríl. Þessa daga hefst skóli eins og venulega kl. 8:10 en skóla lýkur kl. 13:10 hjá öllum nemendum.
Opið hús verður í skólanum á fimmtudaginn frá 9:00-12:00 þar sem hægt verður að kaupa afrakstur þemadaganna.
Hér má sjá auglýsingu um dagana og félagsfærnisögur sem þið getið lesið með börnunum ykkar:
Athugið að nemendur þurfa aðeins að hafa með sér litla tösku fyrir nesti og útiföt á þemadögunum.
Föstudaginn 1. maí er frídagur og því enginn skóli.
Hlökkum til að sjá ykkur á fimmtudaginn.
Starfsfólk Stekkjaskóla