Fræðslu- og kynningarfundir fyrir forráðamenn

Í september verða fræðslu- og kynningarfundir fyrir forráðamenn nemenda.

Fundirnir fyrir forráðamenn nemenda í 1. og 5. bekk eru á vegum umsjónarkennara, skólastjórnenda og skólaþjónustu Árborgar. Aðrir fundir sjá umsjónarkennarar og nemendur um og eru á skólatíma.

Fyrsti fundurinn verður næstkomandi þriðjudag, 3. september kl: 17:00, fyrir forráðmenn barna í 1. bekk. Sjá nánar dagskrá fundarins hér.

Fundurinn fyrir forráðamenn nemenda í 5. bekk verður þriðjudaginn  10. september kl. 17:00.

Það er okkar einlæga ósk að a.m.k. annað foreldri/forsjáraðili sjái sér fært að mæta á fundina.

Bestu kveðjur, stjórnendateymi Stekkjaskóla