Þemadagarnir okkar, Fjölmenning í Stekkjaskóla, hafa farið vel af stað og nemendur mjög áhugasamir.
Heimsókn á morgun föstudag 19. apríl frá kl. 11:45-12:45. Athugið þetta er örlítið breytt tímasetning miðað við fyrri auglýsingu.
Á morgun, föstudag viljum við bjóða foreldrum og forráðamönnum nemenda í heimsókn til okkar og sjá afrakstur nemenda á þemadögum.
Foreldrar/forráðamenn hitta nemendur á sínu svæði/landi. Listi yfir svæði og nöfn nemenda verður sýnilegur í anddyri skólans. Nemendur kynna sitt svæði en heimsækja svo önnur lönd með foreldrum/forráðamönnum. Nemendur eru með vegabréf sem þeir eiga að safna stimplum í frá hinum löndunum.
Skóla lýkur kl. 13:10 hjá öllum nemendum.
Sjá nánar hér.