,,Hver og einn má vera eins og hann vill“

Í liðinni viku voru hinsegin dagar í Árborg. Við í Stekkjaskóla tókum þátt í verkefninu.

Í 1. EIK var bókin Vertu þú – Litríkar sögur af fjölbreytileikanum lesin, rætt um Trans, samkynhneigð og það að hver og einn má vera eins og hann vill. Horft var á stuttmyndirnar um Rósalín prinsessu og Hugrakkasta riddarann en þessar sögur er báðar gefnar út af samtökunum 78′. Í 4. IM var bókin Vertu þú einnig lesin, horft á myndbönd frá samtökunum 78, búnir til regnbogafánar, fræðst um mismunandi fána hinsegin samfélagsins og þýðinguna á bak við þá og nemendur bjuggu til sína  eigin fána.

Þess má geta að nemendur 1. EIK fá bókina ,,Vertu þú“ að gjöf í næstu viku.