Nú er búið að ráða allt starfsfólk Stekkjaskóla fyrir næsta skólaár. Mjög margir öflugir umsækjendur sóttu um og það var ánægjulegt hvað margir vildu taka þátt í að byggja upp skólastarf í nýjum grunnskóla. Við viljum nota tækifærið að þakka öllum umsækjendum fyrir umsóknirnar og sýndan áhuga á Stekkjaskóla.
Fyrsta skólaár Stekkjaskóla, 2021-2022, verða eftirfarandi starfsmenn við skólann:
Hilmar Björgvinsson skólastjóri
Ástrós Rún Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri
Hildur Bjargmundsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu
Elísabet K Kristmundsdóttir umsjónarkennari
Eyrún Óskarsdóttir umsjónarkennari
Indlaug Cassidy Vilmundardóttir umsjónarkennari
Inga Lára Sveinsdóttir umsjónarkennari
Jóhanna Ingadóttir umsjónarkennari
Kristín Ragna Bergmann umsjónarkennari
Margrét Sverrisdóttir umsjónarkennari
Steinunn Alda Guðmundsdóttir umsjónarkennari
Guðný Lára Gunnarsdóttir tónmenntakennari
Hildur Þorkelsdóttir list- og verkgreinakennari
Jónína Ósk Lárusdóttir list- og verkgreinakennari
Hörður Gunnar Bjarnason íþróttakennari
María Ósk Ólafsdóttir sérkennari
Björk Þórisdóttir skólaritari
Inga Dröfn Jónsdóttir yfirþroskaþjálfi
Auður María Óskarsdóttir stuðningsfulltrúi
Bergdís Bergsdóttir stuðningsfulltrúi
Karen Dögg Baldvinsdóttir stuðningsfulltrúi
María Björg Gunnarsdóttir stuðningsfulltrúi
Ægir Máni Bjarnason stuðningsfulltrúi
Fanney Rún Ágústsdóttir Sæland matráður
Erla Ósk Sigurðardóttir Færseth matráður í hlutastarfi
Krystina Porebska matráður í hlutastarfi
Við skólastjórnendur erum virkilega ánægðir með þennan áhugasama og kröftuga starfsmannahóp og hlökkum til samstarfsins. Við bjóðum alla starfsmenn hjartanlega velkomna til starfa og erum þess fullviss að með þessum góðu starfsmönnum munum við byggja upp faglegt og gott skólastarf.