Umsjónarkennarar og stuðningsfulltrúar óskast

Auglýst er eftir umsjónarkennurum á yngsta- og miðstig í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennurum sem vilja kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf. Þekking, hæfni og áhugi á upplýsingatækni er mikilvæg ásamt þátttöku í skólaþróun. Sjá nánar hér.

Einnig er auglýst eftir stuðningsfulltrúum í 75% stöðuhlutföll frá og með 14. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Markmið starfsins er að auka sjálfstæði og færni nemenda námslega, félagslega og í daglegum athöfnum. Sjá nánar hér.

Umsóknarfrestur er til og með  miðvikudagsins 7. ágúst 2024