Stekkjaskóli auglýsir eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár:
- Deildarstjóri yngra stigs
- Náms- og starfsráðgjafi
- Þroskaþjálfi
- Umsjónarkennari á yngsta stig, ein staða
- Umsjónarkennarar á miðstig, 3 stöður
- Íþróttakennarar, 2 stöður
- Stuðningsfulltrúi, 75% staða
Sjá nánar hér: https://sveitarfelagid-arborg.alfred.is/ og auglýsinguna hér fyrir neðan.
Vilt þú taka þátt í því að byggja upp sterka liðsheild í nýjum grunnskóla á Selfossi?
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fljótlega verður 1. áfangi nýbyggingar skólans tekinn í notkun og 2. áfangi skólans verður tilbúinn haustið 2024. Á komandi hausti verða um 240 nemendur í 1.-6. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.
Hér með eru auglýstar fjölbreyttar og áhugaverðar stöður fyrir næsta skólaár.
- Deildarstjóri yngra stigs
- Náms- og starfsráðgjafi
- Þroskaþjálfi
- Umsjónarkennari á yngsta stig, ein staða
- Umsjónarkennarar á miðstig, 3 stöður
- Íþróttakennarar, 2 stöður
- Stuðningsfulltrúi, 75% staða
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2023.
Vakin er athygli á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hilmar Björgvinsson, skólastjóri, hilmarb@stekkjaskoli.is , sími 480-1600 / 863-0922 og Ástrós Rún Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri, astros@stekkjaskoli.is , sími 480-1600.
Umsóknum fylgi leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi. Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins https://sveitarfelagid-arborg.alfred.is/ .
Allar umsóknir eru gildar í sex mánuði.