Samkvæmt skóladagatali skólans er starfsdagur mánudaginn 4. nóvember og þriðjudaginn 5. nóvember eru foreldra- og nemendaviðtöl.
Mánudaginn 4. nóvember er starfsdagur og því enginn skóli. Frístund verður þó opin fyrir þau börn sem eru skráð. Sjá hér.
Þennan dag verða starfsmenn í ýmsum undirbúningi s.s. fyrir foreldradaginn sem verður daginn eftir. Einhver foreldraviðtöl verða þó tekin þennan dag.
Foreldra- og nemendaviðtöl, þriðjudaginn 5. nóvember
Umsjónarkennarar hitta nemendur og foreldra í viðtali. Sjá nánari upplýsingar frá umsjónarkennurum.
Við hlökkum til að sjá nemendur og foreldra á viðtalsdaginn.
Kærar kveðjur, starfsfólk Stekkjaskóla