Miðvikudaginn 19. apríl er skertur dagur í Stekkjaskóla skv. skóladagatali og lýkur skóla kl. 11:20 ( allir nemendur fá hádegismat fyrir heimferð). Föstudaginn 21. apríl er starfsdagur og enginn skóli. Starfsfólk skólans er að fara í náms- og kynnisferð til Varsjár í Póllandi. Við förum m.a. í skólaheimsóknir á fimmtudag og föstudag.
Nánar:
- apríl: Skertur dagur, kennslu lýkur kl. 11:20. Frístund opnar kl. 13:00 fyrir þá sem eru skráðir þar.
- apríl: Sumardagurinn fyrsti, frídagur.
- apríl: Starfsdagur, skólinn lokaður. Bjarkarból er með lengda viðveru þennan dag og hefur nú þegar verið send út skráning vegna þessa.
Skrifstofa skólans verður lokuð frá kl. 11:20 miðvikudaginn 19. apríl og opnar aftur kl. 7:40 mánudaginn 24. apríl.
Sjá hér bréf sem fór heim til forráðamanna 12. apríl.
Stjórnendur og starfsfólk Stekkjaskóla