Skertur dagur 9. október og starfsdagur 10. október

Framundan er skertur skóladagur og starfsdagur. 

Skertur dagur – fimmtudaginn 9. október

Þá lýkur skóla hjá öllum kl. 13:00. Nemendur í frístund fara  beint eftir skóla í hefðbundið frístundastarf. 

Nemendur sem taka „sveitarútuna“ taka hana heim um 13:15 þegar hún hefur sótt í hina skólana. 

Haustþing kennara -starfsdagur 10. október 

Föstudaginn 10. október er starfsdagur í skólanum og því frí hjá nemendum.  

 Kennarar og annað uppeldismenntað starfsfólk verður á Haustþingi kennarafélags Suðurlands. Skólastjórnendur verða á námsstefnu Skólastjórafélags Íslands sem haldið er að þessu sinni í Vallaskóla á Selfossi. 

Stuðningsfulltrúar og aðrir starfsmenn verða á skyndihjálpanámskeiði í Stekkjaskóla.