Val á miðstigi

Í Stekkjaskóla leggjum við mikla áherslu á fjölbreytt nám og fjölbreytta kennslu. Með því að bjóða upp á val á miðstigi viljum við efla nemendalýðræði og áhugasviðsnám. Markmiðið er líka að virkja nemendur á því sviði sem þau hafa áhuga á, að vinna saman þvert á árganga og jafnframt að kynna fyrir þeim nýjar og fjölbreyttar greinar.

  • Valið í Stekkjaskóla er blandað á milli þriggja árganga. 5. 6. og 7 árgangs. Nemendur fæddir 2012, 2013 og 2014 eru því saman í tíma.
  • Valinu er skipt upp í tvo flokka. Val-A nær til fjögurra kennslustunda á viku. Val-B nær til tveggja kennslustunda á viku.
  • 5. árgangur verður eingöngu í Vali B í vetur ásamt því að vera í smiðjurúllu í heimilisfræði, textílmennt, tónmennt og smíði. Það eru samtals 6 kennslustundir í viku í list- og verkgreinakennslu.
  • 6. og 7. árgangur eru bæði í Vali A og vali B. Það eru samtals 6 kennslustundir í viku í list- og verkgreinakennslu.
  • Það verða fimm tímabil í vetur þar sem nemendur geta valið. Nemendur í 5. árgangi fá að velja fmm mismunandi valgreinar yfir skólaveturinn. Nemendur í 6. og 7. árgangi fá að velja 10 mismunandi valgreinar yfir skólaveturinn.

Hugmynd að uppsetningu er unnin eftir fyrirmynd Húsaskóla í Reykjavík.
Ef einhverjar spurningar vakna þá hafið samband við Leif Viðarsson: leifur@stekkjaskoli.is

Valgreinatímabil

Val 1 - Tímabil 26. ágúst - 11. október

Val 2 - Tímabil 14. október - 29. nóvember