Í mars verða stöðu- og framvindupróf lögð fyrir í skólum landsins í 4. – 8. bekk. Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda reglulega yfir skólagönguna.
Matsferilisprófin eru stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði. Prófin verða lögð fyrir dagana 2. – 27. mars 2026 í Stekkjaskóla.
Prófin fara fram innan kennslutíma og eru hluti af daglegu skólastarfi. Þau endurspegla raunverulega færni nemenda og krefjast ekki sérstaks undirbúnings, nemendur mæta einfaldlega og gera sitt besta. Niðurstöður verða sendar foreldrum og forsjáraðilum á Mínar síður á Ísland.is í maí. Þar verður einnig hægt að fylgjast með framvindu barnsins yfir tíma. Á heimasíðu Miðstöðvar menntunar – og skólaþjónustu er að finna góðar upplýsingar um prófin sjálf, fyrirlögn þeirra og hvernig niðurstöður prófanna verða kynntar fyrir forráðamönnum. Sjá hér.
Hér má sjá bréf um prófin sem var sent heim á aðstandendur í 4. – 8. bekk föstudaginn 27. febrúar.
