Lausar stöður í Stekkjaskóla

Stekkjaskóli fer stækkandi og nú vantar fleiri öfluga og áhugasama starfsmenn í hópinn fyrir næsta skólaár. Okkur vantar starfsmenn í eftirfarandi stöður sem eru með umsóknarfrest til og með 13. apríl:

Við auglýsum að nýju eftir umsjónarkennurum. Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl.

Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir rúmlega 500 nemendur í 1.-10. bekk.  Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.

Hér á heimasíðunni má sjá nánari upplýsingar um skólann og skólastarfið. Á ráðningarvef sveitarfélagsins og á alfred.is er hægt að sækja um störfin og fá upplýsingar um Stekkjaskóla og stöðurnar sem eru auglýstar.