Kennarar taka ekki forföll ótímabundið vegna stöðunnar í kjaraviðræðum

Kennarahópur Stekkjaskóla hefur tekið þá ákvörðun að taka ekki forföll ótímabundið vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í kjaraviðræðum kennara.

Ákvörðun þessi er tekin til að sýna forystu KÍ og þeim kennurum sem standa vaktina í verkföllum stuðning í verki.
Af þessum sökum er viðbúið að ekki verði hægt að manna allar kennslustundir og þar af leiðandi gæti orðið nauðsynlegt að senda nemendur heim.