Kennarasamband Íslands hefur verið í kjaraviðræðum við sína viðsemjendur, ríki og sveitarfélög undanfarna mánuði.
Ríkissáttasemjari lagði fram innanhússtillögu í gær sem samninganefnd kennara samþykkti. Samninganefndir ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga höfðu frest til klukkan tíu í gærkvöldi til að taka afstöðu til tillögunnar. Fresturinn var framlengdur aftur fram að hádegi í dag.
Kennarar ganga út núna klukkan rúmlega 12:00
Núna klukkan rúmlega 12:00 ákváðu kennarar í Stekkjaskóla að ganga út til að mótmæla stöðunni sem upp er komin en Samband íslenskra sveitarfélaga hafnaði innanhústillögunni.
Því verða nemendur í 5.-7.bekk sendir heim núna (Kl.12:05).
Nemendur sem eru 1.-4. bekk verða hér í skólanum þar til kl. 13:10 og munu stuðningsfulltrúar og aðrir en kennarar gæta þeirra.
Ef spurningar vakna má senda póst á stekkjaskoli@stekkjaskoli.is eða hringja á skrifstofu skólans.
Kærar kveðjur, skólastjórnendur Stekkjaskóla