Fjölmennur fundur um Matsferil og stöðu- og framvindupróf

Í dag, mánudaginn 9. febrúar, var haldinn fundur í Stekkjaskóla um stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS). Fundurinn var  fyrir alla skólastjórnendur grunnskólanna í Árborg, kennara sem koma að íslensku- og stærðfræðikennslu frá 3. bekk og uppúr, tæknifólk í skólunum, kennara í stoðþjónustu, kennsluráðgjafa og aðra áhugasama.
Prófin verða lögð fyrir á tímabilinu 2. – 27. mars 2026.
Sjá nánar hér um Matsferil og stöðu- og framvinduprófin á heimasíðu MMS og foreldrabréf um lesfimiprófin og nýjungar í túlkun og leiðbeiningum.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stuðlar að framúrskarandi menntun og farsæld allra barna og ungmenna. Þetta gerir hún með öflugum stuðningi og markvissri þjónustu við leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt.