Framundan eru viðburðarríkir dagar í Stekkjaskóla, þ.e. bolludagur, sprengidagur og öskudagur. Jafnframt er vetrarfrí framundan.
Mánudaginn 16. febrúar er bolludagurinn og þá mega nemendur koma með bollur í nesti. Munið að Stekkjaskóli er hnetulaus skóli.
Öskudagurinn
Miðvikudaginn 18. febrúar er öskudagurinn og þá er nemendur og starfsmenn hvattir til að mæta í búningum og gera sér glaðan dag. Við minnum nemendur á að geyma leikfangavopnin sín heima.
Stundataflan verður brotin upp með skemmtun og ekki er sund þennan dag. Dagurinn byrjar á söngstund í matsalnum undir stjórn Guðnýjar Láru tónmenntakennara. Í hádeginu verður pulsuveisla.
Kennslu lýkur hjá okkur kl. 13:00 á öskudaginn. Þá fara allir nemendur heim nema þeir sem eru skráðir í frístund fara þangað kl. 13:00. Sveitarútan fer kl. 13:15.
Vetrarfrí 23.- 24. febrúar
Nú styttist heldur betur í vetrarfrí grunnskólanna í Árborg sem er 23.-24. febrúar næstkomandi. Við hvetjum fjölskyldur að njóta samverustunda í fríinu.
Sjá nánar fréttabréf hér sem fór heim í dag.
