Í dag 16. nóvember er Dagur íslenskrar tungu á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar skálds (1807-1845). Í gær var haldið upp á daginn í Stekkjaskóla með okkar árlegu bókamessu.
Markmið bókamessunnar er að vera með lestrarhvetjandi hátíð, fagna íslenska tungumálinu og gefa gömlum bókum nýtt líf.
Síðustu daga komu nemendur með bók eða bækur í skólann og þökkum við þeim og ykkur foreldrum kærlega fyrir. Allir nemendur skólans fengu síðan að velja sér bók að gjöf á bókamessunni.
Nokkrir stærri bókagjafir hafa jafnframt borist skólanum sem er dýrmætt fyrir skólabókasafnið okkar sem við erum að byggja upp. Enn og aftur kærar þakkir fyrir allar bækurnar.