Frábærum þemadögum lauk með markaðsdegi í Stekkjabæ

Fimmtudaginn 30. apríl lauk þemadögum Stekkjaskóla með opnu húsi í Stekkjabæ og markaðsdegi. Mikill fjöldi gesta kom á markaðsdaginn og er varlega áætlað að gestirnir hafi verið á bilinu 1.000-1.200 talsins.

 

Á þemadögunum ríkti mikil gleði og vinnusemi hjá nemendum og starfsmönnum sem skilaði sér í frábærum markaði á lokadeginum.  Þar voru nemendur með ýmsar vörur í boði s.s. handverk, listir, blóm, Stekkjafréttir, kökur og drykki og margt fleira sem nemendur bjuggu til. Það var virkilega ánægjulegt að sjá hvað nemendur voru áhugsamir og duglegir í allri sinni vinnu og sýndu mikla ábyrgð.
Við minnum á að Stekkjaskóli er með Facebook síðu þar sem frásagnir og myndir eru frá dögunum, sjá hér.  Einnig er skólinn með Instagram síðu,  sjá hér
Inni á fréttavef sunnlenska.is er vönduð frétt frá þemadögunum; Líf og fjör í Stekkjabæ | sunnlenska.is .
Fréttamenn Stekkjafrétta gáfu út virkilega flott fréttablað með nafninu ,,Stekkjafréttir“ sem var selt á markaðsdeginum. Inni í blaðinu er QR kóði inn á fréttasíðu hópsins. Sjá hér.
Myndir verða settar inn  á heimasíðu skólans á næstu dögum.
Bæjarstjórn Stekkjabæjar, nemendur og starfsmenn þakkar öllum gestum kærlega fyrir komuna á opna hús Stekkjabæjar.