Frábær mæting á fyrsta páskabingó Stekkjaskóla

Fyrsta páskabingó Stekkjaskóla var haldið í gær, miðvikudaginn 25. mars. Bingóið gekk glimrandi vel, góð mæting og gleði.

Hér fyrir neðan má sjá þakkarbréf sem Klara og Elín Ása sendu heim í dag en þær höfðu yfirumsjón með þessum glæsilega viðburði.

 

Kæru foreldrar, forráðamenn og aðrir gestir!

TAKK, TAKK, TAKK kæru gestir fyrir frábæra mætingu á fyrsta páskabingó Stekkjaskóla!
Við erum alveg orðlaus yfir því hversu ótrúlega vel var mætt á okkar fyrsta viðburð og frumraun hér í Stekkjaskóla sem var framar okkar björtustu vonum.
Við nemendur í 6., 7. og 8. bekk lærðum heilmikið í gegnum þetta verkefni m.a. að stíga á svið og tala fyrir framan stóran hóp fólks. Við fengum líka dýrmæta innsýn í það hvað tókst einstaklega vel og hvað við getum gert enn betur næst, því alltaf má bæta sig.

Enn og aftur –  kærar þakkir fyrir komuna og allan þann stuðning sem fyrirtæki og foreldrar veittu okkur!
Gleðilega páska!

F.h. stjórn nemendafélags Stekkjaskóla
Klara Öfjörð, námsráðgjafi og Elín Ása, umsjónarkennari 6. bekkjar