Appelsínugul veðurviðvörun í dag – spá gærdagsins gengur eftir

Í dag, fimmtudaginn 26. mars, er appelsínugul veðurviðvörun. Spá gærdagsins gengur því eftir og bréf sem skólinn sendi á forráðamenn í gær er í fullu gildi. Spáð er að veðrið gangi yfir upp úr hádegi.

Skólahald verður með eðlilegum hætti í Stekkjaskóla í dag. 

Meti forráðamenn það svo að best sé að halda barni heima vegna veðurs eða færðar skulu þeir tilkynna skólanum um forföll barnsins og skoðast það þá af hálfu skólans sem eðlileg forföll. Mælst er til þess að foreldrar og forráðamenn sendi börn sín ekki fótgangandi til skóla. 

Sjá nánar frétt hér á heimasíðunni frá því í gær og bréf sem fór heim til forráðamanna í gær.

Skólastjóri