Kæru forráðamenn nemenda í Stekkjaskóla
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular veðurviðvaranir á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar, á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi.
Skólahald verður með eðlilegum hætti í Stekkjaskóla.
Vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar fimmtudaginn 26. mars fellur eftirfarandi akstur niður:
- Dreifbýlisakstur fyrir grunnskóla Árborgar um morguninn
- Strætóferðir Árborgarstrætó fram að hádegi, eftir það verður staðan tekin
- Ferðaþjónusta Fatlaðra – Ekki verður farið út fyrir Selfoss
Hér má sjá veðurskýringu Vedurstofu Íslands.
Verði röskun á skóla- eða frístundastarfi eru skólar engu að síður opnir og taka á móti nemendum. Meti forráðamenn það svo að best sé að halda barni heima vegna veðurs eða færðar skulu þeir tilkynna skólanum um forföll barnsins og skoðast það þá af hálfu skólans sem eðlileg forföll. Mælst er til þess að foreldrar og forráðamenn sendi börn sín ekki fótgangandi til skóla.
Fyrirhugaðri árshátíð í 4. árgangi sem átti að vera í fyrramálið verður frestað fram á föstudag.
Foreldrum og forsjáraðilum er bent á að fylgjast með fréttum og tilkynningum. Ef breytingar verða á veðri mun skólinn setja inn upplýsingar á heimasíðu skólans og með tölvupósti í fyrramálið.
Hér má sjá leiðbeiningar fyrir foreldra og forráðamenn frá Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins sem ber heitið Röskun á skóla- og frístundastarfi vegna veðurs
LEIÐBEININGAR FYRIR STARFSFÓLK Í SKÓLA- OG FRÍSTUNDASTARFI
Sjá bréf hér sem fór heim til forráðamanna í dag.
Kærar kveðjur, skólastjórnendur Stekkjaskóla
