Lokakeppni Stóru upplestrakeppninnar í Árborg var haldin í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri í skólahúsnæðinu á Stokkseyri fimmtudaginn 19. mars síðastliðinn.
Keppendur voru 11 nemendur úr 7. árgöngum grunnskólanna í Árborg. Þrír nemendur kepptu fyrir hönd Stekkjaskóla. Það voru þau Katla Margrét Ægisdóttir, Rúnar Baldvin Felixson og Vigdís Birta Veigarsdóttir. Öll stóðu þau sig frábærlega vel og erum við í skólanum virkilega stolt af þeim.
Keppnin þótti mjög jöfn og því var það mjög gleðilegt að tveir nemendur Stekkjaskóla lentu í verðlaunasæti. Það voru þau Katla Margrét sem lenti í 2. sæti og Vigdís Birta í 3. sæti. Við óskum þeim innlega til hamingju sem og Rúnari sem stóð sig mjög vel.
Sigurvegararnir fengu að launum glæsilegar bókagjafir sem Bragi Bjarnason bæjarstjóri afhenti.
Þess má geta að undirbúningur keppninnar hefur staðið frá því á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Nemendur 7. bekkjar í Stekkjaskóla hafa æft sig mikið undir stjórn umsjónarkennara sinna þeirra Hjalteyjar og Valgerðar Rúnar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á hátíðinni.
Sjá nánar frétt á heimasíðu Árborgar hér.







