Skertur skóladagur þriðjudaginn, 23. september – skóla lýkur kl. 11:00

Á morgun þriðjudaginn 23. september  er skólaþróunardagur kennara frá kl. 11:00-16:00.

Skóladeginum lýkur kl. 11:00, en nemendur í 1.-4. bekk sem fara í frístund borða kl. 11:00 og verða í skipulögðu frístundastarfi á vegum skólans þar til frístundaþjónustan tekur við kl. 13:10.

Aðrir nemendur borða ekki hádegismat í skólanum og fara heim strax að loknum skóla kl. 11:00.

Kveðja, 

Skólastjórnendur Stekkjaskóla