Öskudagur – skertur dagur

Á morgun, miðvikudaginn 5. mars, er öskudagurinn. Það má gera ráð fyrir því að það verði líf og fjör í skólanum eins og undanfarin ár. Við hvetjum nemendur og starfsmenn til að mæta í búningum og gera sér glaðan dag. Við minnum nemendur á að geyma leikfangavopnin sín heima. Sundkennsla fellur niður á morgun og verður smá uppbrot á skólastarfinu yfir daginn en að mestu leyti verðu hefðbundin kennsla.  

Dagurinn byrjar á söngstund í matsalnum undir stjórn Guðnýjar Láru tónmenntakennara. Nemendur verða sóttir inn á svæði í fyrramálið til að koma í veg fyrir árekstra. 

Eins verða stöðvar í fjölnotasalnum þennan dag fyrir hvern árgang sem íþróttakennararnir sjá um. Hver árgangur fær 40  mínútur í salnum. Íþróttakennarar sækja nemendur. 

Kennslu lýkur hjá okkur kl. 13:00 þennan dag. Þá fara allir nemendur heim nema þeir sem eru skráðir í frístund fara út á skólalóð áður en þeir fara í frístund. Sveitarútan fer kl. 13:15. 

Sjá bréf hér sem fór heim.

Kærar kveðjur, skólastjórnendur Stekkjaskóla