Gleðilegt sumar

Stekkjaskóla var slitið í þriðja sinn við hátíðlega athöfn þann 6. júní síðastliðinn.  Á skólaslitum yngri nemenda spiluðu tveir nemendur á hljóðfæri, hún Erika Ósk Valsdóttir á fiðlu og Magni Þór Ívarsson á horn. Á skólaslitum eldri nemenda söng kór Stekkjaskóla lagasyrpu undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Það voru glaðir nemendur sem hlupu út í sumarið að lokinni vitnisburðarafhendingu.

Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars. Njótið samverustunda og útiveru og sjáumst hress og endurnærð í haust.

Skólasetning verður fimmtudaginn 22. ágúst og kennsla hefst skv. stundaskrá föstudaginn 23. ágúst.

Gleðilegt sumar.

Starfsmenn Stekkjaskóla