Gleðilegt sumar
Í næstu viku verða þemadagar hjá okkur í Stekkjaskóla.
Foreldrum er boðið að koma og ganga á milli stöðva fimmtudaginn 28. apríl frá kl. 8:45 – 11:00.
Þemað okkar tengist þeim áherslum sem við höfum verið að vinna með í þróunarverkefninu okkar Stekkur til framtíðar sem eru:
• Skapandi skólastarf og fjölbreyttir kennsluhættir
• Jákvæður skólabragur
• Tækni og nýsköpun
• Umhverfismál og útikennsla
Stöðvarnar verða sex og fara nemendur á þær allar:
- Stöð 1 – Ratleikur: Farið verður í ratleik þar sem reynir á lausnaleit og samvinnu þátttakenda. Ef
tími gefst til þá verður farið í að týna rusl í nágrenninu og farið yfir hvernig á að flokka það. - Stöð 2 – Sköpun listaverks. Unnið verður listaverk úr timbri sem okkur hefur verið gefið.
Lokaútkoman mun verða fjölnota þrívíddarlistarverk sem mun prýða skólann okkar. - Stöð 3 – Nærumhverfið kannað: Farið verður í gönguferð sem endar með tónleikum á pallinum
hjá Guðnýju Láru tónmenntarkennara þar sem spilað verður á Ukulele. - Stöð 4 – Listsköpun: Unnið verður með efni sem okkur hefur verið gefið og nemendur fá m.a. að
spreyta sig á að þæfa ull. - Stöð 5 – Umhverfismennt: Nemendur fá að gróðursetja fræ og skreyta pottana sem eru dósir
sem starfsmenn hafa safnað í vetur. - Stöð 6 – Tækni og nýsköpun: Unnin verða verkefni sem reyna á tæknikunnáttu og nýsköpun.
Sjá nánar bréf sem fór heim til foreldra fyrir helgi um þemadagana og myndatökur af nemendum sem fara fram þann 10. maí.