Starfsdagur, nemenda- og foreldraviðtöl, vöfflukaffi

Starfsdagur er í skólanum mánudaginn 2. nóvember  og því frí hjá nemendum. 

Nemenda- og foreldraviðtöl hefjast mánudaginn 2. nóvember og halda áfram þriðjudaginn 3. nóvember. 

 

Vöfflusala nemendafélagsins er 2.-3. nóvember.  

Salan fer fram á eftirfarandi tímum: 

  • 2. nóvember kl. 12:30-15:15 
  • 3. nóvember kl. 8:15-12:00 

Kaup á vöfflum er stuðningur við nemendafélag Stekkjaskóla

Óskilamunir
Minnum nemendur og foreldra að kíkja á óskilamuni sem verða á göngum skólans. 

Stekkjaskóli er aðgengilegur á Facebook og Instagram. Finnið síðurnar með því að slá inn Stekkjaskóla í leit. Síðurnar eru nýttar til upplýsingagjafar og hvetjum við alla foreldra til að fylgja okkur þar.  

 

Bestu kveðjur, starfsfólk Stekkjaskóla