Tímabil 5: 6. apríl - 5. júní

Nemendur í 5.-6. bekk velja fimm sinnum yfir veturinn einhverja valgrein sem tengist áhugasviði.
Ásamt þessum valgreinum verða allir nemendur í hefðbundnum list- og verkgreinum.

Nemendur fá valblað með sér heim sem fyllar þarf út heima.

Nauðsynlegt er að nemendur velji með foreldrum og/eða forráðamönnum og fái undirskrift á blaðið.


Val

Er kennt á miðvikudögum kl. 12:30-13:50


01 Skynjun og þakklæti

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari:  Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Áhersla á að búa til þakklætis dagbækur og skynfærin notuð á mismunandi hátt m.a. að búa til lyktarolíur og smökkun mismunandi matvæla.

Þetta er val fyrir þá sem hafa áhuga á að virkja skynfærin sín.

Hæfniviðmið

Að loknu vali er stefnt að því að nemandi geti:

  • ...tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran hátt
  • ...notað sköpun og skynfæri við mismunandi vinnu
  • ...unnið eftir fyrirmælum

    Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. 


02 Golf

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Leifur Viðarsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessari valgrein förum við upp á golfvöll með rútu og lærum grunnatriðin í að spila golf. Farið verður bæði yfir golfsveifluna og háttsemis- og siðareglur sem nauðsynlegar er að kunna og fara eftir í golfi.

Fyrri hluta tímabilsins verðum við í inniaðstöðu Golfklúbbs Selfoss við Svarfhól. Seinni hluti tímabilsins verður síðan utandyra í æfingaraðstöðu Golfklúbbs Selfoss þar sem bæði er hægt að slá af mottum, pútta á stórri æfingarflöt og æfa stutta spilið.

Ekki er skylda að hafa prófað að spila golf áður en það er þó líka í lagi fyrir krakka sem hafa spilað golf að skrá sig og vera með. Það verða æfingar í boði fyrir alla.

Hæfniviðmið:

  • Þjálfa liðleikaæfingar sem reyna á hreyfivídd og hreyfigetu.
  • Þjálfa útfærslu flókinna hreyfinga þannig að þær renni vel saman.
  • Taka þátt í einstaklingsíþróttum og heilsurækt.
  • Fara eftir leikreglum og sýnt háttvísi í leik og hvatt til jákvæðrar framkomu við samherja og mótherja.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat ásamt þátttaku í tímum.


03 Skrautskrift

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Elín Anna Lárusdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessu valfagi er farið yfir tæknina að skrifa með skrautskrift. Lagðar verða inn nokkrar aðferðir að skrautskrifa og ýmsar gerðir skrautskrifta kynntar til sögunnar.

Ýmis verkefni verða gerð í tímanum til að æfingar eins og að skrifa tækifæriskort, haus á gestabók, nafnspjald og einnig notast við tillögur nemenda að verkefnum.

Markmið:  

Nemendur læra…

  • …rétt grip á penna.
  • …að nota penna við skrift.
  • …ýmsar gerðir skriftarstíla.
  • …að skrautskrifa við ýmis tækifæri.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat


04 Leikir og fjör

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Kristín Hanna Guðmundsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í þessu vali ætlum við í fullt af skemmtilegum leikjum bæði úti og inn. Til dæmis landaparís, Lukku Láki, eina króna, brennó, ninja og prinspóló.

Nemendur læra að örva hreyfigetu, efla samvinnu, tillitsemi, snerpu og athygli.

Áhersla er lögð á það að nemendur fái að læra skemmtilega leiki og kynnast hvert öðru.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur læri skemmtilega leiki.
  • Að nemendur þjálfi hreyfingu getu, þolinmæði og einbeitingu.
  • Að nemendur efli samskipti, samvinnu.

Námsmat

Virkni og þátttaka í tímum.


05 Útikennsla

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Nemendur fara út, kveikja upp í eldstæðinu þar sem bakaðar verða lummur, hitað kakó, poppað popp og ýmislegt fleira

Ef ekki er veður til að kveikja upp verður farið í göngutúra og svæði í nágrenni skólans skoðuð.

VIðmið:

  • Að nemendur sýni ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði
  • Að nemendur geti tekið tillit til annarra í hópavinnu og sýnt frumkvæði
  • Að nemendur geti unnið á skipulagðan hátt.

Námsmat

Leiðsagnarmat, verkefnavinna á veggspjöldum og virkni í tímum.


06 Hjólaval, frisbígolf o.fl.

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Bára Sif Guðlaugsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Hjólað verður um bæinn á reiðhjólum og stoppað á ýmsum stöðum til að fara í leiki eða prófa spennandi íþróttagreinar. Farið verður í frisbígolf, fótbolta, strandhandbolta, körfubolta og fleira. Nemendur eru einnig hvattir til að kynna samnemendum sínum fyrir áhugaverðum stöðum þar sem skemmtilegt er að stunda hreyfingu.

Mikilvægt er að nemendur mæti á reiðhjólum og með reiðhjólahjálma þá daga sem valið er kennt á og að nemendur komi klæddir eftir veðri.

Hæfniviðmið

  • Markmiðið er að nemendur kynnist nýjum íþróttagreinum og sýni leikni í þeim, þjálfi upp aukið þol og læri að taka þátt á ábyrgan hátt í útivist.

Námsmat

Þátttaka og virkni nemenda.


07 Tónlist og bíómyndir

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 9 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessari smiðju ætlum við að skoða tónlist í bíómyndum. Við horfum á klassískar myndir, eða brot úr þeim og pælum aðeins í tónlistinni. Prófum að syngja eitthvað af lögunum og ræðum saman um hvað gerir lög góð.

Markmið:

  • Hlusta á sígild lög úr bíómyndum.
  • Læra um uppbyggingu tónlistar.
  • Syngja og læra texta.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat


Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is