Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert.
Eitt af því sem við höfum fest í sessi í skólastarfinu okkar er Bókamessa Stekkjaskóla fyrir nemendur í 1.-4. bekk sem við höldum á þessum hátíðisdegi. Bókamessan verður að þessu sinni á bókasafninu okkar Hugarheimi.
Við höfum lagt okkur fram við að efla bókakost skólans og byggja upp bókasafnið okkar. Í desember fáum við til okkar rithöfunda til að lesa fyrir nemendur og einnig stefnum við að því að hafa opið hús á Bókasafninu og bjóða foreldrum í heimsókn til okkar. Það verður auglýst síðar.
Við þökkum forráðamönnum kærlega fyrir samvinnuna við heimalestur nemenda, því saman náum við árangri og styðjum við lestrarnám og lesskilning nemenda.
