Á morgun, miðvikudaginn 25. nóvember er skertur kennsludagur frá kl. 11:00 samkv. skóladagatali. Dagurinn verður tileinkaður ýmiskonar faglegri vinnu starfsmanna, s.s. Örveru þar sem kennarar og uppeldismenntaðir kynna fyrir hverjir öðrum ýmis verkefni sem eru í gangi í skólanum og einnig verður hópefli fyrir alla starfsmenn til að efla liðsheildina.
Skóladeginum lýkur kl. 11:00, nema hjá nemendum í 1.–4. bekk sem eru skráðir í frístund. Þeir verða í skipulögðu frístundastarfi á vegum skólans í umsjá stuðningsfulltrúa þar til frístundaþjónustan tekur við kl. 13:10.
Aðrir nemendur borða ekki hádegismat í skólanum og fara heim strax að loknum skóla kl. 11:00.
Við biðjum foreldra og forsjáraðila að gera viðeigandi ráðstafanir vegna heimferðar þeirra nemenda sem ekki fara í frístund.
Skólarúta GTS sækir nemendur sem nýta hana um kl. 11:05
Sjá bréf hér.
Með bestu kveðju,
Starfsfólk Stekkjaskóla