Val í 7.- 8. bekk

Tímabil 3: 30. nóvember - 29. janúar

 Val A

Er kennt á mánudögum og fimmtudögum kl. 13:00-14:20


01 Heimilisfræði

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hilmar Guðlaugsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Heimilisfræði er ekki valgrein í A vali. Allir fara í heimilisfræði einu sinni í vetur.

Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.

Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.

Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.

Hæfniviðmið

  • Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
  • Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
  • Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
  • Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.

 


02 Jólaskraut og þrykk

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í desember gera nemendur fjölbreytt jólaskraut og í boði er að skreyta boli/ peysur fyrir jólin. Í janúar kynnast nemendur ólíkum tegundum af þrykki þar sem notaður verður pappír og vinýll. Nemendur munu nýta sér það við að gera snyrtibuddu, kodda eða fleiri lítil verkefni.

Hæfniviðmið

  • Að nemendur kynnist grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar.
  • Að nemendur geti saumað með fót við brún.
  • Að nemendur geti unnið eftir ferli og leyft sköpunargleðinni að ráða
  • Að nemendur kynnist mismunandi aðferðum við þrykk
  • Að nemendur vinni hugmynd frá skissu að fullbúnum hlut.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt þátttöku í tímum.   EInnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.

 


03 Teiknimynda- og hljóðstofa

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson og Magnús Hilmar Viktorsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Gefðu teiknimyndinni rödd!

Lýsing:

Markmið áfangans er að nemendur kynnist heimi teiknimynda, talsetningar og hljóðvinnslu á skapandi og skemmtilegan hátt. Nemendur fá að vinna með eldri teiknimyndir og gefa þeim nýtt líf með eigin talsetningu, hljóðum, tónlist og skapandi hugmyndum.

Nemendur vinna saman í hópum við að velja atriði úr eldri teiknimyndum, semja samtöl, úthluta hlutverkum og taka upp eigin raddir. Þeir fá einnig tækifæri til að prófa sig áfram með mismunandi hljóðfæri, hljóðbrellur og tónlist til að skapa rétta stemningu í myndunum.

Í áfanganum verður fjallað um sögu teiknimynda, þróun teiknimyndapersóna, mikilvægi hljóðs í kvikmyndum og hvernig tónlist, tal og hljóðbrellur hafa áhrif á upplifun áhorfandans.

Stefnt er að því að nýta hljóðfæri og efnivið frá Tónmenntastofunni þar sem nemendur geta gert tilraunir með að búa til sín eigin hljóð og tónlist.

Áhersla verður lögð á samvinnu, hugmyndaflug, tjáningu og að nemendur læri með því að prófa sig áfram.

Hæfniviðmið:

  • Kynnst sögu teiknimynda og þróun þeirra í gegnum tíðina.
  • Getað nýtt eigin hugmyndir og sköpunargáfu við talsetningu og hljóðvinnslu.
  • Þekkt hvernig tal, tónlist og hljóðbrellur hafa áhrif á stemningu og frásögn í teiknimyndum.
  • Getað unnið með rödd sína, hljóðfæri og mismunandi hljóð til að skapa nýja upplifun.
  • Tekið þátt í samvinnu, skipulagt verkefni og skipt með sér verkum.
  • Getað tjáð hugmyndir sínar með hljóði, tali og skapandi miðlun.
  • Gert tilraunir með mismunandi aðferðir við hljóðsköpun og upptökur.
  • Gengið vel um tæki, hljóðfæri og annan efnivið.

Námsmat:

Þátttaka og virkni í tímum. Samvinna og samskipti innan hóps. Skapandi hugsun og hugmyndavinna. Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði. Áhugi og tilraunagleði við talsetningu og hljóðsköpun.

Lokaverkefni: Talsett teiknimynd þar sem nemendur nýta eigin raddir, hljóð og tónlist.

 


04 Gullastokkur

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur smíða lítinn kistil fyrir gull og gersemar. Farið verður í Fablab og prentað með laser á lokið og led borði með USB tengdur inn í það .

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur noti ólíkan efnivið og kynnist notkun laser og Fablab.
  • Að  nemendur vinni eigin teikningu til að prenta á hlut í laser.
  • Að nemendur læri að nota verkfæri við hæfi, beita þeim rétt og rétta umhirðu þeirra.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat.

 


05 Skólahreysti

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Bára Sif Gunnlaugsdóttir og Heiðar Pétur Halldórsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Skólahreysti er spennandi og krefjandi valgrein fyrir nemendur sem hafa áhuga á hreyfingu, styrk og samvinnu. Í valinu er lögð áhersla á alhliða líkamlega þjálfun þar sem unnið er markvisst að því að bæta styrk, þol, liðleika og snerpu á uppbyggilegan hátt.

Nemendur kynnast æfingum sem byggja á greinum Skólahreysti, sem eru upphífingar, dýfur, armbeygjur, hanga og hindrunarbraut. Jafnframt er lögð áhersla á góða líkamsbeitingu og jákvætt hugarfar.

Valgreinin hentar bæði þeim sem stefna á þátttöku í Skólahreysti í framtíðinni og einnig nemendum sem vilja bæta líkamlega færni, sjálfstraust og gleði í hreyfingu. Markmiðið er að efla heilsu, þrautseigju og liðsheild í gegnum skemmtilegt og hvetjandi æfingaumhverfi.

Markmið

  • Nemandi getur tekið þátt í fjölbreyttum styrktar- og þolæfingum.
  • Nemandi getur framkvæmt grunnæfingar í Skólahreysti.
  • Nemandi getur sýnt þrautsegju, sjálfsaga og jákvætt hugarfar við líkamlegar áskoranir.

Námsmat

Þátttaka og virkni nemenda.  

 


06 Leikskólaval

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Finnst þér gaman að vinna með börnum?

Leikskólinn Jötunheimar er rétt hjá Stekkjaskóla. Í þessari valgrein verður mikið farið þangað og þið fáið að taka virkan þátt í að aðstoða börnin í leik og starfi. Unnið verður meðal annars með útileiki, söngstund, innileiki, sögugerð, o.fl. Þið getið líka útbúið einhverja fræðslu fyrir börnin og kennt þeim í leikskólanum.

Að vinna á leikskóla er ábyrgðarstarf og þið þurfið öll að skrifa undir trúnaðarsamning í fyrsta tíma þegar þið farið á fund með leikskólastjórnendum.

Markmið

Að nemandi geti…

  • Sýnt frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum.
  • Unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi.
  • Geti sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð.
  • Nýtt sér leiðsögn, endurgjöf og gagnrýni á uppbyggilegan hátt.
  • Sett sér fjölbreytt og skapandi markmið á grunni persónulegra styrkleika og tileinkað sér hugarfar vaxtar.

Námsmat

Leiðsagnarmat, símat og jafningjamat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt virkni, frumkvæði og framkomu í tímum.

 


Val B

Er kennt á þriðjudögum kl. 12:30-13:50

01 Heimilisfræði

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hilmar Guðlaugsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Heimilisfræði er ekki valgrein í B vali. Allir fara í heimilisfræði einu sinni í vetur í A vali en einn hópur fer í B vali og er þá í tvöfaldan tíma til að það sé jafnlangt

Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.

Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.

Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.

Hæfniviðmið

  • Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
  • Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
  • Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
  • Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.


02 Jólaskraut og leir

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í desember gera nemendur fjölbreytt jólaskraut og í boði er að skreyta boli/peysur fyrir jólin.

í janúar kynnast nemendur leir sem ekki þarf að brenna og búa til kertastjaka, skálar og fleira.

Hæfniviðmið:

  • Að nemandi geti unnið eftir ferli og leyft sköpunargleðinni að ráða.
  • Getur unnið með hugmynd frá skissu að fullgerðum hlut.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.


03 Skákval

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Sveinbjörn Jón Ásgrímsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Vinnum saman, lærum byrjanir, leysum þrautir, teflum innbyrðis - skákmót og fjöltefli.

Hæfniviðmið:

  • Námsmarkmið, hæfni- eða matsviðmið að nemendur nái góðum tökum á skáklistinni.
  • Læra byrjanir - miðtafl - endatafl
  • LEYSA þrautir
  • Greina eigin skákir 

Námsmat:

Framfarir nemenda metnar - Hér er hver og einn að keppa við sjálfan sig í að verða betri skákmaður.


04 Hnotubrjótar

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Við lærum um hönnun, myndsköpun og þrívíða vinnu með því að búa til hnetubrjóta úr einföldum endurnýttum efniviði. Nemendur vinna að því að skapa jólalega hnotubrjóta-veröld. 

Verkefnið skiptist í tvo hluta:
A. Litlir hnotubrjótar – einstaklingsverkefni
Hver nemandi hannar sinn eigin hnetubrjót. Nemendur geta valið mismunandi liti, búninga, hatta, hárgreiðslur og svipbrigði.
B. Einn stór sameiginlegur hnetubrjótur
Hér vinna nemendur saman að því að búa til stóran hnetubrjót úr stórum pappahólki.

Stóri hnotubrjóturinn gæti orðið sameiginlegt jólaverkefni sem verður til sýnis í skólanum yfir aðventuna.

Hæfniviðmið:

  • Unnið með þrívíð form og byggt upp einfaldar fígúrur úr endurnýttum efniviði.
  • Nýtt hugmyndaflug og sköpunargáfu við hönnun eigin hnetubrjóta.
  • Kynnst mismunandi efnum, áferðum og aðferðum við myndsköpun.
  • Unnið sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
  • Tileinkað sér að nýta endurnýtanlegan efnivið í skapandi verkefnum.
  • Sýnt frumkvæði við lausnaleit og útfærslu eigin hugmynda.
  • Gengið vel um efni og áhöld og sýnt ábyrg vinnubrögð.

Námsmat:

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. Einnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.


Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is